Girnilegar uppskriftir
Patésósa
Þessi sósa passar mjög vel með regnbogapatéinu okkar og einnig með reykta fisknum. Best er að útbúa hana deginum áður en hún er borin fram því hún er þunn fyrst eftir að búið er að blanda hana.
Hrærið saman:
- 1/2 dós sýrður rjómi (smekksatriði hvort notað er 10% eða 18%)
- 2 msk. mayonese
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1/4 tsk salt
- 1/4 tsk pipar
- 1 tsk Dijon sinnep
- 1 og 1/2 tsk. fljótandi hunang
- 1/2 tsk. dill
Sósa fyrir grafna bleikju
Hrærið saman:
- 280 gr. mayonese
- 1 msk Dijon sinnep
- 1 msk fljótandi hunang
- 1 tsk dill
- salt og pipar eftir smekki
- (brúnn matarlitur – ef þú vilt hafa sósuna dekkri, við sleppum honum yfirleitt)